Fundir 2010

18.02.2011
Hver er þeirra gæfu smiður?
Meira
18.11.2010
Áhrif niðurskurðar á framhaldsskólann og brottfall

Miðvikudaginn  17. nóvember var haldinn morgunverðafundur á vegum samstarfshópsins Náum áttum. Fundarefnið að þessu sinni var áhrif niðurskurðar á framhaldsskólum og brottfall. Þrjú erindi voru á dagskránni,

Miðvikudaginn 17. nóvember á GRAND hótel kl. 08.15-10.00

ERINDI
1. Jón Sigfússon, framkvæmdastjóra R&G (Rannsóknir og greining)   (glærur)  
Staða ungs fólks utan framhaldsskóla
Smelltu hér til að hlusta á erindi Jóns

2. Gísli Ragnarsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla  (glærur)
Áhrif niðurskurðar á framhaldsskól 
Smelltu hér til að hlusta á erindi Gísla


3. Hervör Alma Árnadóttir, lektor í félagsráðgjafardeild HÍ  (glærur)
Stuðningur til náms við ungmenni sem búa við félagslega erfiðleika.
Smelltu hér til að hlusta á erindi Hervarar



OPNAR UMRÆÐUR Í LOK FUNDARINS
Smelltu hér til að hlusta á umræðurnar

Fundarstjóri: Margrét María Sigurðardóttir
Smelltu hér til að hlusta á opnunarræðu Margrétar

Meira
29.10.2010
"Þetta er bara gras"

Morgunverðarfundur haldinn í samstarfi við Viku 43, vímuvarnaviku 2010.  Erindi fluttu Brynhildur Jensdóttir frá Foreldrahúsi, fjallaði um ranghugmyndir unglinga um skaðsemi kannabis, Rannveig Þórisdóttir frá Lögreglustjóra, fjallaði um þróun fíkniefnabrota sem tengjast kannabisefnum á höfuðborgarsvæðinu og Andrés Magnússon, geðlæknir sem fjallai um afleiðingar kannabisneyslu á heila og heilsu.  Fundurinn var haldinn í Þjóðleikhúskjallaranum en að fundi loknum bauðst fundarfólki að sjá forvarnaleikritið HVAÐ EF? sem sýnt er í Viku 43 í Kassanum og er ætlað unglingu í efri bekkjum grunnskóla.  Fundarstjóri var Árni Einarsson frá FRÆ.

Meira
14.10.2010
Að uppræta einelti!

Framsöguerindi voru frá Leikhópnum ELÍTAN sem sýndi leikþátt um einelti á netinu, Berglindi Rós Magnúsdóttur, ráðgjafa mennta- og menningarmálaráðherra sem fjallaði um faglega umhyggju og velferð í skólasamfélaginu og liðsmönnum Jerico, landssamtökum foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda sem fjölluðu um einelti út frá þolanda og geranda.
Fundarstjóri var Margrét Júlía Rafnsdóttir.

Meira
15.09.2010
Eineltisáætlun - hvað svo?

Á fjölmennum fyrsta morgunverðarfundi Náum áttum hópsins á Grand hótelinu á þessu hausti var rætt um einelti. Yfirskrift fundarins var: Eineltisáætlanir hvað svo?

Meira
19.05.2010
Að þora að vera foreldri

Framsöguerindi fluttu Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnastjóri Lýðheilsustöð sem fallaði um unglinga og áfengi og afstöðu foreldra til þeirra mála og Hrefna Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og aðjúnkt við HÍ sem fjallaði um Fjölskylduna sem öryggisnet. 

Meira
14.04.2010
Velferð barna - tækifæri til skimunar og þjónustu í skólakerfinu

Erindi fluttu Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri heilsuverndar skólabarna, Þróunrstofu heilsugæslunnar, sem fjallaði um skimun og þjónustu heilsugæslunnar í grunnskólum

Meira
17.03.2010
Börn og vímuefni - viðbrögð kerfisins

Framsöguerindi voru frá Braga Guðbrandssyni og Halldóri Haukssyni sem fjölluðu um verkskiptingu ríkis og sveitarfélaga og hvort breytinga færi þörf, Guðrún Marínósdóttir, deildarstjóri Barnaverndar Reykjavíkur sem fjallaði um hlutverk barnaverndar

Meira
24.02.2010
Börn með ADHD - ekki gera ekki neitt

Miðvikudaginn 24. febrúar 2010 GRAND Hótel kl. 8.15 - 10.00 Fundinn sóttu um 120 manns frá ýmsum stofnunum, samtökum og verkefnum á sviði barna- og uppeldismála. Glærur frá framsögufólki má nálgast hér á síðunni. Framsöguerindi Ingibjörg Karlsdóttir félagsráðgjafi og formaður ADHD

Meira